Arnarparið reynir varp á ný

Fyrir tæpu ári síðan varð uppvíst um skemmdarverk á arnarhreiðri í eyju á sunnanverðum Breiðafirði, eins og sagt var frá í frétt á heimasíðu Náttúrustofu Vesturlands. Þar hafði ungt arnarpar búið sig undir varp en ekkert varð úr því vegna skemmda sem unnar voru á hreiðrinu.

Ánægjulegt er að sjá að þetta virðist ekki hafa hindrað parið í að reyna aftur og hefur það nú byggt nýjan hreiðurlaup og virðist ætla að gera aðra tilraun til varps, segir á vef Náttúrustofunnar.

Að þessu sinni munu ýmsir aðilar fylgjast vandlega með hreiðrinu úr landi og af sjó til að reyna að koma í veg fyrir að parið verði aftur fyrir truflun. Einnig er í skoðun að setja upp vöktunarmyndavél í nágrenni við hreiðrið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert