Íhuga að fara í skaðabótamál

Jóhannes Ingi Kolbeinsson er framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar.
Jóhannes Ingi Kolbeinsson er framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar. mbl.is/Ómar

Kortaþjónustan segir að lögbrot Valitors hafi skaðað fyrirtækið fjárhagslega og gert stöðu þess á markaði lakari en ella. Kortaþjónustan áskilur sér rétt til að fara fram á skaðabætur vegna málsins „enda er ólíðandi að sitja undir endurteknum lögbrotum af hálfu keppinauta okkar á markaði“.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kortaþjónustunni vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um brot Valitors á samkeppnislögum.

Kortaþjónustan segist fagna úrskurði Samkeppniseftirlitsins. Með honum vonist fyrirtækið til að skref sé stigið í átt að eðlilegri samkeppni á kortamarkaðnum á Íslandi.

„Því miður hafa gjörðir keppinauta okkar á markaði þó ekki bent til þess hingað til að þeir séu tilbúnir til að keppa heiðarlega við Kortaþjónustuna. Brotin sem Valitor er dæmt fyrir nú voru til að mynda framin strax eftir að Valitor ásamt Borgun og Greiðsluveitunni viðurkenndu í Kortasamráðsmálinu langvarandi og alvarleg brot á samkeppnislögum sem miðuðu að því að koma Kortaþjónustunni af markaði,“ segir í tilkynningunni.

„Í ljósi þess að niðurstaða Kortasamráðsmálsins frá 2008 virðist ekki hafa haft meiri áhrif á starfshætti Valitors en raun ber vitni teljum við ljóst að nýja hugsun þarf í meðhöndlun og viðurlög samkeppnislagabrota. Það er ekki nóg að sekta félögin sjálf, heldur verða stjórnendur og stjórnir brotlegra fyrirtækja að vera ábyrg gjörða sinna. Ef stjórnendur eru ekki sóttir til saka er fælingarmáttur samkeppnislaganna ekki nægilega mikill og líklegra en ella að freistast sé til að beita ólöglegum aðferðum.

Það er ljóst að lögbrot Valitors hefur skaðað Kortaþjónustuna fjárhagslega og gert stöðu fyrirtækisins á markaðnum lakari en ella. Kortaþjónustan áskilur sér rétt til að fara fram á skaðabætur vegna þessa máls, enda er ólíðandi að sitja undir endurteknum lögbrotum af hálfu keppinauta okkar á markaði,“ segir ennfremur.

Þá kemur fram, að úrskurðurinn sýni fram á að Kortaþjónustan hafi ekki einungis þurft að þola alvarleg brot frá stofnun fyrirtækisins árið 2002 og fram að úrskurði í Kortasamráðsmálinu 2008. Brotin hafi haldið áfram eftir það.

„Við þekkjum hversu erfitt er að starfa við slíkar aðstæður og óskum engum þess sama. Því miður er hættan sú að á meðan íslensk fyrirtæki halda áfram að eiga viðskipti við lögbrjóta og markaðsníðinga versni ástandið frekar en að batna. Það þarf því hver og einn að líta í eigin barm og spyrja sig hvort eðlilegt sé að verðlauna viðskiptahætti þeirra sem hafa gerst brotlegir við samkeppnislög með áframhaldandi viðskiptum,“ segir í tilkynningu frá Kortaþjónustunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert