Ólík sýn á sjávarútvegsmálin

mbl.is/Sigurður Bogi

„Viðræður um aðlögun lagasetningar Íslands að Evrópusambandinu hafa gengið með einföldum hætti fyrir sig utan einn málaflokk, sjávarútveg. Íslendingar vilja halda fullveldinu yfir auðugum fiskimiðum sínum, Evrópusambandið leggur áherslu á sameiginlegar reglur,“ segir á fréttavefnum Euobserver.com í gær þar sem fjallað er um þingkosningarnar hér á landi næstkomandi laugardag með tilliti til Evrópumála.

Fram kemur í fréttinni að búist sé við að kjósendur afþakki frekari ríkisstjórnarsetu Samfylkingarinnar sem styðji inngöngu í Evrópusambandið en geri hins vegar Framsóknarflokknum fært að setjast í ríkisstjórn. Möguleg ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins kunni í kjölfarið að boða til þjóðaratkvæðis um framhald viðræðnanna.

Ennfremur segir að umsóknin um inngöngu í Evrópusambandið hafi verið mjög umdeild meðal Íslendinga síðan Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi sótt um inngöngu í júlí 2009 og heitið því að halda þjóðaratkvæði um niðurstöðu viðræðnanna.

Þá er vitnað í nýlega skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem hafi sýnt að 55% Íslendinga vilji að viðræðunum verði lokið og síðan fari fram þjóðaratkvæði um það hvort gengið verði í Evrópusambandið en um þriðjungur vilji draga umsóknina til baka.

Frétt Euobserver.com

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert