Enn finnast óveðurskindur

Fárviðrið á Norðurlandi fór illa með margan sauðfjárbóndann í haust.
Fárviðrið á Norðurlandi fór illa með margan sauðfjárbóndann í haust. mbl.is

Þrjár kindur fundust á lífi í Þorgeirsfirði í dag en þeirra hefur verið saknað síðan óveðrið gekk yfir Norðurland í september. Félagar úr björgunarsveitinni Ægi á Grenivík voru við æfingar í firðinum í dag þegar þeir rákust á kindurnar.

Sagt er frá fundinum á fréttavef Þingeyjasýslu, 641.is. Kindurnar eru frá bænum Grýtubakka í Höfðahverfi, í eigu Þórarins Inga Péturssonar bónda og formanns Landssambands íslenskra sauðfjárbænda.

Björgunarsveitarmennirnir settu kindurnar á sleða og fluttu þær heim að Grýtubakka þar sem Þórarinn tók þeim fagnandi. 641.is hefur eftir honum að þær séu ótrúlega vel á sig komnar eftir að hafa gengið úti í tæpa sjö mánuði.

Nær snjólaust hefur verið nyrst í Þorgeirsfirði í allan vetur og er það vafalaust ástæða þess að féð var svona vel á sig komið, samkvæmt 641.is. Að sögn Þórarins var margbúið að leita að fé á þessu svæði, bæði í haust og einnig eftir áramót, en þessar hafa greinilega farið fram hjá leitarmönnum. Síðustu vikurnar hefur umferð sleðamanna verið mikil á svæðinu, en þó ekki alveg niður við sjó, enda snjólaust þar.

Til marks um gott ástand á fénu er að heilmikil hornahlaup eru á báðum lömbunum og þó sérstaklega á hrútnum. Þórarinn taldi líklegt að bæði gimbrin og ærin væru með lömbum, enda gat enginn haft afskipti af þeim á fengitímanum í vetur.

Nánar á 641.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert