Ísland óvæntur áfangastaður veðurbarinna Breta

Sólþyrstir Bretar hafa flykkst til Thailands í ár.
Sólþyrstir Bretar hafa flykkst til Thailands í ár.

Íslenska krónan er þriðji vinsælasti erlendi gjaldmiðillinn á fyrsta fjórðungi ársins 2013, ef marka má gjaldeyriskaup breskra handhafa American Express greiðslukorta.

Kortafyrirtækið American Express birti í dag upplýsingar um hverjir séu þrír vinsælustu áfangastaðir breskra korthafa. Niðurstaðan byggist á gjaldeyriskaupum korthafanna á tímabilinu.

Á sama tíma hrjáði harður vetur og leiðindatíð Breta og því koma tveir helstu áfangastaðirnir ekki á óvart, en þeir eru Egyptaland og Taíland. Þangað sóttu þeir í sól og hlýtt veður.

En hluti Bretanna hefur ekki fengið nóg af snjó og vetri því Ísland er óvænt þriðji vinsælasti áfangastaður handhafa American Express korta í Bretlandi. Segir kortafyrirtækið að miðað við sama tímabil í fyrra hafi tælenski baht, egypska pundið og íslenska krónan sótt verulega í sig veðrið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert