Brottför Herjólfs staðfest kl. 15:30

mbl.is/Styrmir Kári

Tekin hefur verið ákvörðun um að staðfesta brottför Herjólfs klukkan 15:30 í dag vegna hækkandi öldu í samræmi við spá og fyrri tilkynningar.

„Ef aðstæður leyfa verði siglt til Landeyjahafnar, að öðrum kosti verður siglt til Þorlákshafnar,“ segir í tilkynningu frá rekstraraðila skipsins og ennfremur að verði hægt að sigla til Landeyjahafnar verði brottför þaðan aftur klukkan 16:30.

Verði hins vegar siglt frá Þorlákshöfn verður brottför þaðan á hefðbundnum tíma klukkan 19:15. Mikil óvissa sé hins vegar um síðustu ferð dagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert