Tollurinn fargaði húsgögnum

Munirnir voru fluttir í gámi hingað til lands en um …
Munirnir voru fluttir í gámi hingað til lands en um var að ræða stóla, borð og lampa sem voru eftirlíkingar af þekktum húsgögnum sem seld eru í sérverslunum hér á landi.

Tollgæslan stöðvaði nýverið sendingu frá Kína, sem reyndist meðal annars innihalda á annað hundrað eftirlíkingar af húsgögnum nokkurra frægra hönnuða í Danmörku, Þýskalandi, Bretlandi og á Ítalíu, að því er segir í tilkynningu.

Munirnir voru fluttir í gámi hingað til lands en um var að ræða stóla, borð og lampa sem voru eftirlíkingar af þekktum húsgögnum sem seld eru í sérverslunum hér á landi.

„Þarna var um að ræða brot á hugverkaréttindum viðkomandi hönnuða og var húsgögnunum fargað í móttökustöð Sorpu, undir eftirliti tollvarða. Málinu er þar með lokið og mun Tollstjóri ekki veita nánari upplýsingar um það,“ segir í tilkynningu frá Tollstjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka