Þjóðminjasafni Íslands verður í dag afhent fyrsta flíkin sem Eggert Jóhannsson feldskeri saumaði eftir pöntun að loknu námi í Lundúnum og Svíþjóð. Rannveig Guðmundsdóttir, síðar alþingismaður og ráðherra, er eigandi lambaskinnsjakkans sem saumaður var árið 1977.
Í tilefni af því að 35 ár eru liðin frá því Eggert hóf framleiðslu á skinnfatnaði ákváðu Rannveig og Eggert að jakkinn skyldi komast í eigu þjóðarinnar og verða varðveittur hjá Þjóðminjasafni Íslands. Samkvæmt söfnunarstefnu Þjóðminjasafnsins er lögð áhersla á að fá til safnsins muni sem þýðingu hafa fyrir samtíma- og atvinnusögu landsmanna og fellur lambaskinnjakkinn vel að þessari stefnu.
Jakkinn verður afhentur Þjóðminjasafninu í dag kl. 15.