Héraðsdómur dæmdi gengistryggingu ólöglega

Hérðasdómur Reykjavíkur
Hérðasdómur Reykjavíkur Ernir Eyjólfsson

Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag í máli Flugastraums   ehf.   gegn   Landsbankanum  að  fjármögnunarleigusamningar Landsbankans (áður  SP Fjármögnunar) væru í raun lánasamningar og því væri gengistrygging  þeirra  ólögleg.

Krefjast leiðréttingar

Í  niðurstöðu  dómsins  segir  m.a. að SP fjármögnun  hafi veitt Flugastraumi ehf. lán til kaupa á dráttarvél sem  SP  fjármögnun  útbúið í formi leigusamnings til tryggingar réttindum sínum.  Dómsmál  þetta  er  eitt  af  fjölmörgum málum er Samtök iðnaðarins hafa staðið að með ýmsum fyrirtækjum.

Í fréttatilkynningu frá Samtökum Iðnaðarins um málið er þess krafist „að  fyrirtæki  á  fjármálamarkaði virði niðurstöður  dómstóla   og  leiðrétti  þegar  í  stað  þúsundir  ólöglegra fjármögnunarleigusamninga.“

Þá segir að  fjármögnunarleigur hafi gert ólöglega lánasamninga við 2.500 fyrirtæki og að heildarupphæð hlaupi á milljörðum króna vegna þeirra 10-15 þúsund fjármögnunarleigusamninga sem gerðir voru.

Óvissa hamlandi fyrir endurreisn atvinnulífs

Dómurinn er samhljóða dómi Hæstaréttar frá 20. október 2011 þegar samningar Íslandsbanka  voru  dæmdir  ólöglegir.  Vafaatriði varðandi vaxtaútreikning ólöglegra lána hafa tafið fyrir lokauppgjöri við lántakendur.

„SI  telja  þessa bið allsendis óviðunandi. Skuldastaða fyrirtækja er óljós. Fyrirtækjum  er  gert  ómögulegt  að kaupa eða selja framleiðslutæki og tól. Þessi   langvarandi  óvissa  og kyrrstaða er íslensku atvinnulífi fjötur um fót.  Fjármálafyrirtækjum  ber  tafarlaust  að endurreikna hin ólöglegu lán miðað  við  Seðlabankavexti  með  fyrirvara  um  betri  rétt  lántakenda og endurtaka  þá  útreikninginn ef dómar falla á þá lund. Óvissa vegna þessara mála  sl.  þrjú  ár  er  hamlandi  og  tefur  fyrir nauðsynlegri endurreisn íslensks atvinnulífs,“ segir í fréttatilkynningu Samtaka iðnaðarins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert