Hálendisvegir opnaðir einn af öðrum

Nú er vegurinn inn í Landmannalaugar orðinn fær.
Nú er vegurinn inn í Landmannalaugar orðinn fær. Rax / Ragnar Axelsson

Vegagerðin hefur opnað veginn frá Hrauneyjum og í Landmannalaugar og einnig um Dómadalsleið sem og um Hólssand við Dettifoss.

„Líklega verður vegurinn í Veiðivötn opnaður eftir daginn í dag en það kemur í ljós. Hugsanlega verður einnig vegurinn að Laka opnaður fyrir helgi, eins er nokkuð líklegt að leiðin inn í Nýjadal á Sprengisandi verði opnuð fyrir helgi,“ segir Bjarni Jón Finnsson hjá Vegagerðinni í Vík í Mýdal. Hann segir að vegirnir um hálendið verði opnaðir í seinna lagi í ár og það rakið til mikilla snjóa víða.

Hálendiskort Vegagerðarinnar
Hálendiskort Vegagerðarinnar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert