Þyrla náði í konu á eyju í Þjórsá

Þjórsá. Mynd úr safni.
Þjórsá. Mynd úr safni. mbl.is/RAX

Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði í dag svifvængjaflugmann sem lenti á eyju í miðri Þjórsá. Þyrlan lenti á eyjunni og var konan tekin um borð. Læknir um borð gekk síðan úr skugga um að í lagi væri með hana. Því næst var hún sett út við Búrfell þar sem hún hafði lagt upp í flugið.

Að sögn Landhelgisgæslunnar var þyrlan skammt frá í venjubundnu æfingaflugi þegar henni barst beint beiðni um aðstoð vegna svifvængjaflugmannsins. „Af því þeir voru í nágrenninu þá fóru þeir á staðinn, sóttu fyrst tvo menn sem voru kunnugir og í framhaldinu var farið að eyjunni, konan sótt og hún síðan sett í land.“

Gæslan hefur ekki fengið lokaskýrslu um málið en útkallið tók skamman tíma, alls liðu 16 mínútur frá því þyrlunni barst beiðnin og þar til lent var með konuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert