10% fjölskyldna eiga 41% af skuldunum

Hjón með börn höfðu hæsta meðaltal skulda.
Hjón með börn höfðu hæsta meðaltal skulda. mbl.is/Ómar Óskarsson

Í lok árs 2011 skulduðu fjölskyldur á aldrinum 35–49 ára mest allra aldurshópa á Íslandi. Samanlagðar skuldir þeirra voru 809,3 milljarðar króna sem samsvarar um 43% af heildarskuldum og höfðu dregist saman um 7,6% á milli ára. Um 19% fjölskyldna skulduðu ekkert í árslok 2011.

Þetta kemur m.a. fram í nýjum Hagtíðindum Hagstofunnar um niðurstöður af ítarlegri athugun á skuldum, eignum og eiginfjárstöðu einstaklinga sem unnin er úr skattframtölum áranna 1997 til 2011.

Af skuldsettum fjölskyldum skuldaði helmingur 6 milljónir króna eða minna og 90% skuldsettra fjölskyldna skulduðu minna en 31,4 milljónir kr. Samanlagðar skuldir allra, að frátalinni hæstu skuldatíundinni, voru 1,1 milljarður króna eða 59% heildarskulda.

Fjölskyldur sem tilheyrðu hæstu skuldatíundinni, þ.e. þær fjölskyldur sem skulduðu mest, skulduðu samanlagt 767 milljarða króna eða tæp 41% af heildarskuldum. Þessar fjölskyldur voru einkum hjón með börn (57%) og hjón með engin börn á framfærslu (23%). Hjón með börn höfðu hæsta meðaltal skulda, einkum eftir árið 2008.

Sjá ítarlega hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert