Afþakka frekari afskipti Landsvirkjunar

Frá Þjórsárverum.
Frá Þjórsárverum. mbl.is/Brynjar Gauti

Náttúruverndarsamtök Suðurlands mótmæla frestun umhverfis-­- og auðlindaráðherra á ákvörðun um stækkun friðlands í Þjórsárverum. Samtökin segja stækkun friðlandsins í Þjórsárverum vera rökrétt framhald rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða þar sem athafnasvæði mögulegrar Norðlingaölduveitu var sett í verndarflokk.

Í ályktun samtakanna segir að rammaáætlun byggi á löngu og ítarlegu ferli samráðs þar sem fjöldi hagsmunaaðila, þ. á m. Landsvirkjun, hefur haft tækifæri til álitsgjafar og umsagna á öllum stigum.

„Stækkun friðlands í Þjórsárverum er vernd gagnvart orkuvinnslu sem á sér lagastoð í sjálfri rammaáætlun,“ segir í ályktuninni.

„Fullyrðingar Landvirkjunar um ólögmæti stækkunar friðlandsins vegna skorts á samráði fá því ekki staðist. Fullyrðingar umhverfis-­- og auðlindaráðherra um alvarlegar athugasemdir sveitarfélaga við stækkun friðlandsins hafa ennfremur verið hraktar á opinberum vettvangi. Náttúruverndarsamtök Suðurlands gagnrýna einnig hvernig staðið var að afboðun samkomu vegna áformaðrar undirskriftar stækkunar friðlands í Þjórsárverum.“

Samtökin segjast afþakka frekari afskipti Landvirkjunar af friðlýsingum svæða í verndarflokki rammaáætlunar. Samtökin skora á umhverfis-­- og auðlindaráðherra að standa vörð um rammaáætlun og jarða hið fyrsta þá stríðsöxi sem Landsvirkjun reiddi á loft með síðbúnum afskiptum af máli sem þegar var víðtæk sátt um í þjóðfélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert