Hettumávur aðgangsharður á veitingastöðum

Þessi mávur var sallarólegur á borði á veitingastað í göngugötunni …
Þessi mávur var sallarólegur á borði á veitingastað í göngugötunni á Akureyri. Ljósmynd/Karl Eskil

„Hann getur vægast sagt verið mjög frekur og brotaviljinn er stundum einbeittur,“ segir veitingamaður í miðbæ Akureyrar í viðtali við Vikudag um hettumáva sem eiga það til að stela brauði og mat af diskum gesta kaffi- og veitingahúsa, sem bjóða upp á aðstöðu utandyra.

„Þeir sveima oft yfir miðbænum og bíða færis, það hefur oft komið fyrir að máfar renni sér niður á boðin ef gestirnir bregða sér frá í stutta stund. Líklega er lítið um æti hjá þeim, enda hefur sorphirða víðast hvar í þéttbýli tekið miklum breytingum á undanförnum árum.“

 Eigendur veitingahúsa hafa reynt að bregðast við vandanum, en með takmörkuðum árangri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert