Ólétt kona stöðvaði vinnu höggbors

Mikill hávaði kemur af vinnu á Hampiðjureitnum á Laugavegi.
Mikill hávaði kemur af vinnu á Hampiðjureitnum á Laugavegi. Ingibjörg Torfadóttir

„Við stöðvuðum framkvæmdirnar hér á Laugaveginum. Bak við húsið okkar er svokallaður Hampiðjureitur. Þeir hafa verið að bora hérna alla daga allan liðlangan daginn í allt sumar og það er ekkert hægt að búa hérna þegar þetta er svona,“ segir Hlynur Jónsson sem býr ásamt unnustu sinni, Þuru Garðarsdóttur, á Laugaveginum en þau hafa þurft að þola mikinn hávaða vegna bygginga sem rísa eiga á reitnum. Þau fengu nóg þegar hávaðinn byrjaði eldsnemma í morgun, á laugardegi og fóru út og stöðvuðu framkvæmdirnar.

„Það er reglugerð sem segir að það megi bara bora á virkum dögum og þeir hafa brotið þessar reglur ítrekað þannig að við fórum þarna út eldsnemma í morgun þegar þeir voru byrjaðir að bora og tókum reglugerðina með okkur. Þarna var einn starfsmaður að vinna við höggbor. Þura, unnustan mín, fór inn á svæðið og settist niður fyrir framan vinnuvélina. Þá hringdum við í lögregluna og hún kom ásamt starfsmanni aðalverktakans og við sýndum þeim reglugerðina og þeir stoppuðu framkvæmdirnar,“ segir Hlynur, en í reglugerðinni segir að sérstaklega hávaðasamar framkvæmdir séu óheimilar um helgar. Þess má geta að Þura er ólétt, komin sex mánuði á leið.

Allir nágrannar orðnir langþreyttir

Hávaðinn stendur yfir að sögn Hlyns frá morgni til kvölds alla daga vikunnar nema á sunnudögum. En það hefur verið unnið nánast undantekningalaust alla laugardaga í sumar. „Framkvæmdirnar eru skammt á veg komnar, en mesti hávaðinn er af höggbornum og þeir segja að því eigi að ljúka í vikunni. Það verður spennandi að sjá hvort þeir standa við það,“ segir Hlynur en á reitnum á að rísa bæði sjö hæða íbúðarhúsnæði og fjögurra hæða, ásamt bílakjallara.

Nágrannarnir við reitinn eru orðnir langþreyttir og hafa stofnað með sér hóp á facebook til að bera saman bækur sínar, en hópurinn ber nafnið Hampiðjuhávaði. Hlynur setti þar inn í morgun á síðuna hvað þau hefðu gert til að stöðva framkvæmdirnar og virtust nágrannarnir ánægðir með framtakssemi þeirra. Þar var skrifað af Hlyni: „Þura, með óléttubumbuna sína, settist ofan í reitinn svo þeir gætu ekki haldið áfram þar til lögreglan mætti á svæðið ásamt Antoni frá ÞG verktökum. Niðurstaðan var sú að þeim er óheimilt að vinna með höggborinn á öðrum dögum en virkum dögum og framkvæmdir voru stöðvaðar.“

Nágrannarnir eru orðnir langþreyttir á hávaðanum alla daga vikunnar.
Nágrannarnir eru orðnir langþreyttir á hávaðanum alla daga vikunnar. Ingibjörg Torfadóttir
Ekki er vinna á svæðinu komin langt.
Ekki er vinna á svæðinu komin langt. Ingibjörg Torfadóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert