Umfjöllunin um Ólaf fyrir neðan allar hellur

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna viðtals við Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur borgarfulltrúa. Viðtalið birtist í tímaritinu Nýju lífi, sem kom út í dag og hefur vakið mikla athygli. 

Þorbjörg segist í viðtalinu skammast sín fyrir að hafa gert Ólaf F. Magnússon að borgarstjóra í Reykjavík árið 2008. „Ólafur var veikur maður, og það vissu allir,“ segir hún í viðtalinu. 

Vilhjálmur segir viðtalið dapurlegt og fyrir neðan allar hellur með hvaða hætti hún fjalli um Ólaf F. Magnússon. 

Að auki segir hann Þorbjörgu fara með vitlaust mál þegar hún segir að fundur vegna stofnunar nýs borgarstjórnarmeirihluta hafi verið haldinn á heimili Ólafs. 

Að sögn Vilhjálms bar hann mikið traust til Þorbjargar á þeim tíma þegar hún vann undir hans stjórn í meirihlutanum, en hann gefur lítið fyrir tal hennar um að hann hafi ekki stutt hana í störfum hennar í borginni vegna stuðnings hennar við Gísla Martein í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í nóvember 2005. „Samstarf okkar var með ágætum eins og samstarf mitt við aðra borgarfulltrúa, þótt vissulega hafi borið skugga á það samstarf sem ég leiddi til 100 daga meirihlutans í borgarstjórn.

Yfirlýsingin í heild sinni:

Yfirlýsing frá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.
Mér finnst þetta viðtal við Þorbjörgu dapurlegt og með hvað hætti hún fjallar um Ólaf F. Magnússon fyrir neðan allar hellur. Til viðbótar persónulegri aðför að Ólafi getur hún þess að fundur vegna stofnunar nýs meirihluta hafi verið haldinn á heimili Ólafs. Það er rangt. Þegar sjálfstæðismenn sömdu við Ólaf í janúar 2008 um nýjan meirihluta hafði hann gegnt læknisstörfum frá 1. okt. 2007 og hafði lagt fram læknisvottorð um heilbrigði sitt.

Enn heldur hún áfram að fjalla um svokallað REI-mál. Í því máli hafa áður komið fram fullyrðingar hennar um að verið væri að afsala auðlindum OR eða selja hluta af eignum OR. Þær fullyrðingar eru rangar. Samkomulagið um stofnun hlutafélags með aðild Reykjavík Energy Invest og annarra félaga  gekk út á að færa jarðvarmaverkefni OR erlendis í sérstakt hlutafélag þar sem OR væri meirihlutaeigandi, uþb. 68%, ásamt íslenskum fyrirtækjum sem sinntu svipuðum verkefnum erlendis og takmarka þannig áhættu OR af slíkum verkefnum.

Þann tíma sem Þorbjörg vann undir minni stjórn þegar ég var borgarstjóri, treysti ég henni vel til þeirra verkefna sem hún var kjörin í. Á árunum 2006 og 2007 tók hún þátt í ítarlegum hagræðingaraðgerðum sem ég beitti mér fyrir, ekki öllum vinsælum, en þær skiluðu sér í bættri afkomu borgarsjóðs á þessum árum.  Ímyndanir hennar um að hún hafi ekki haft minn stuðning í störfum fyrir borgina, m.a. vegna þess að að hún studdi Gísla Martein í baráttu um fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í nóv. 2005 get ég ekki ráðið við. Samstarf okkar var með ágætum, eins og samstarf mitt við aðra borgarfulltrúa, þótt vissulega hafi borið skugga á það samstarf, sem leiddi til 100 daga meirihlutans í borgarstjórn.

Sjá einnig: Borgarfulltrúar misnotuðu veikindi Ólafs

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert