Banaslys á Langjökli

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins. Af vef Landhelgisgæslunnar

Rúmlega sextugur karlmaður frá Taívan, ferðamaður á Íslandi, lést þegar hann missti stjórn á vélsleða sem hann ók á Langjökli um hádegisbil í dag.  

Slysið var tilkynnt lögreglu kl. 12:23 og var maðurinn úrskurðaður látinn af lækni í áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún lenti á vettvangi um klukkutíma síðar. Eiginkona mannsins var farþegi á sleðanum og slasaðist hún einnig en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg.  

Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi og eru lögreglumenn þaðan ennþá á vettvangi.   

Sleðinn verður fluttur í bíltæknirannsóknarsetur Lögreglunnar á Selfossi til rannsóknar.  Lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar um málið í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert