Fordæmir framgöngu ESB

Ljósmynd/Vestnorræna ráðið

„Vestnorræna ráðið fordæmir harðlega hótanir Evrópusambandsins um refsiaðgerðir gegn Íslandi og Færeyjum vegna makrílveiða landanna, sem og refsiaðgerðir sambandsins gegn Færeyjum vegna síldarveiða þeirra.“

Þannig hefst ályktun sem samþykkt var í dag af Vestnorræna ráðinu en aðild að því eiga Ísland, Færeyjar og Grænland. Ársfundur ráðsins stendur nú yfir í Narsarsuaq á Grænlandi og sitja hann 18 þingmenn frá löndunum þremur.

Fram kemur ennfremur í ályktuninni að framganga Evrópusambandsins sé ekki ásættanleg í alþjóðasamskiptum. Því er mótmælt að sambandið hafi kosið í krafti stærðar sinnar að fara þá leið að hóta nágrönnum sínum. Og það þrátt fyrir að fyrir liggi niðurstöður norskra hafrannsókna að makrílstofninn kunni að skapa umhverfisvanda í hafinu vegna stærðar sinnar.

Vakin er athygli á því hversu mikil áhrif slíkar refsiaðgerðir geti haft á fámenn samfélög vestnorrænu landanna og eru Norðmenn ennfremur hvattir til þess að styðja Ísland og Færeyjar og hafna framgöngu Evrópusambandsins. Þá er það harmað að sjávarútvegsráðherra Noregs, Lisbeth Berg-Hansen, hafi lýst yfir stuðningi við aðgerðir sambandsins. Eru norsk stjórnvöld hvött til þess að endurskoða þá afstöðu sína.

Ennfremur er Norðurlandaráð hvatt til þess að beita sér í málinu og styðja Ísland og Færeyjar. Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, segir í samtali við mbl.is að hljóðið sé þungt í Færeyingum vegna málsins. Það sé sameiginlegt álit fulltrúa í ráðinu að staða landanna sé sterkari gagnvart málinu ef þau standi saman og ályktunin sé liður í því.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert