Grænlendingar ætla að veiða 55 þúsund tonn af makríl í ár

Grænland er auðugt af náttúruauðlindum. Nú hefur makríll bæst í …
Grænland er auðugt af náttúruauðlindum. Nú hefur makríll bæst í auðlindakistuna. mbl.is/Skapti

Grænlendingar juku makrílkvóta sinn í 55 þúsund tonn í vikunni, en í upphafi vertíðar var miðað við 15 þúsund tonn.

Karl Lyberth, sjávarútvegsráðherra í grænlensku landsstjórninni, segir í samtali við grænlenska blaðið Sermitsiaq að hugsanlega verði makrílkvótinn 80 þúsund tonn á næsta ári.

Lyberth segir í samtali í Morgunblaðinu í dag, að Grænlendingar ætli að nota næstu tvö til þrjú ár til að komast að því hversu mikið gengur af makríl og síld í lögsögu þeirra. Að þeim tíma liðnum vilji Grænlendingar fá sæti við samningaborðið þar sem fjallað er um stjórnun veiða á síld og makríl og skiptingu afla.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert