Laxahrogn flutt út fyrir röskan milljarð

Úr starfsstöð Stofnfisks við Kalmannstjörn.
Úr starfsstöð Stofnfisks við Kalmannstjörn.

Stofnfiskur nýtur sérstöðu á markaði í Síle vegna heilbrigðis laxahrogna og er nú eina fyrirtækið sem hefur leyfi til að flytja laxahrogn til landsins.

Þá hefur það styrkt stöðu fyrirtækisins á erlendum mörkuðum að það getur afgreitt laxahrogn alla mánuði ársins. Útlit er fyrir að Stofnfiskur flytji út laxahrogn fyrir röskan milljarð á þessu ári og fara yfir 60% framleiðslunnar til Síle, að því er fram kemur í umfjöllun um útflutning Stofnfisks í Morgunblaðinu í dag.

Stofnfiskur framleiðir laxahrogn m.a. í Vogum á Vatnsleysuströnd og á Kalmanstjörn við Hafnir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert