Ræddu um Sýrland við Obama

Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, Sauli Niinisto, forseti Finnlands, Barack Obama …
Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, Sauli Niinisto, forseti Finnlands, Barack Obama forseti Bandaríkjanna, Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra Íslands við upphaf kvöldverðarins. JEWEL SAMAD

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fundaði í kvöld með leiðtogum Norðurlandanna og Barack Obama forseta Bandaríkjanna í Stokkhólmi. Meðal umræðuefna voru efnahagsmál, loftslagsmál, málefni norðurslóða og utanríkis- og öryggismál. Málefni Sýrlands voru ítarlega rædd á fundinum.

Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Sigmundur Davíð hafi á fundinum leitt umræðu um norðurslóðir og fjallaði meðal annars um þau tækifæri og áskoranir sem fælust í breytingum sökum loftslagsbreytinga, jafnt í efnahagslegu, félagslegu, umhverfislegu og öryggislegu tilliti. Áréttaði ráðherra mikilvægi svæðisbundinnar samvinnu, m.a. innan vébanda Norðurskautsráðsins.

Undir öðrum umræðuliðum kom forsætisráðherra meðal annars inn á möguleika jarðhita og reynslu Íslands þar að lútandi, meðal annars í þróunarsamvinnu, og mikilvægi útbreiðslu þekkingar í austanverðri Afríku sem meðal annars á sér stað í Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.Einnig fjallaði forsætisráðherra um mikilvægi samstarfs Norðurlandanna við Eystrasaltsríkin.

Jafnframt voru ræddar öryggisáskoranir 21. aldar og auknir möguleikar Norðurlandanna og Bandaríkjanna til samstarfs á ýmsum sviðum, m.a. á sviði öryggismála, orkumála og samstarfs á norðurslóðum, ekki síst á vettvangi Norðurskautsráðsins.

Málefni Miðausturlanda, einkum Sýrlands, fengu ítarlega umfjöllun á fundinum. Bandaríkjaforseti útlistaði rök Bandaríkjastjórnar fyrir takmarkaðri hernaðaríhlutun, sem nú er til umfjöllunar á Bandaríkjaþingi. Sigmundur Davíð áréttaði mikilvægi þess að leita áfram friðsamlegra lausna á deilunni. Þar hefði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna meginhlutverki að gegna og brýnt væri að öryggisráðið axlaði ábyrgð á því hlutverki sínu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert