Rætist spár um 15% árlegan vöxt í ferðaþjónustu út þennan áratug mun það hafa mikla efnahagslega þýðingu og gera greinina að leiðandi atvinnuvegi í landinu. Án þessa vaxtar yrðu hagvaxtarhorfur mun lakari.
Þetta er mat Ingólfs Bender, forstöðumanns Greiningar Íslandsbanka, sem segir greinina orðna leiðandi grein í sköpun gjaldeyristekna.
„Ferðaþjónustan er orðin lykilgrein í íslenska hagkerfinu og sú grein sem leiðir hagvöxt. Við sjáum á nýjum tölum um hagvöxt að ferðaþjónustan knýr áfram vöxtinn. Ef spár um 15% árlegan vöxt ferðaþjónustunnar fram til 2020 rætast yrðu það stórtíðindi fyrir íslenskt efnahagslíf,“ segir Ingólfur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.