Ekki inni í myndinni að skerða þjónustu heilbrigðisstofnana

Á Landspsítalanum.
Á Landspsítalanum. mbl.is/Golli

Ekki stendur til að leggja af heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni heldur að sameina yfirstjórn þeirra innan heilbrigðisumdæma, að sögn Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra.

Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að spara eigi 160 milljónir króna með því að sameina heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi, Suðurlandi og Vestfjörðum.

„Við horfum fyrst og fremst á stjórnunarlagið. Í stað níu ríkisforstjóra verða þrír. Við erum ekki að fara að skerða þjónustu við íbúa þessara landsvæða. Það er ekki inni í myndinni. Við munum þvert á móti leitast við að tryggja þeim öruggari og betri þjónustu,“ segir Kristján í fréttaskýringu um sameiningu heilbrigðisstofnana í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert