Hjónin Þórdís Dagbjört Gunnarsdóttir og Jóhann Guðmundsson tóku fyrir helgi við 1.000. og 1.001. Toyota bílunum sem afhentir eru á þessu ári. Þau tók við lyklunum að bronslitum RAV4 og dökkgráum Yaris úr hendi Úlfars Steindórssonar, forstjóra Toyota á Íslandi.
Þetta er fimmti og sjötti Toyotabíllinn sem hjónin Þórdís og Jóhann kaupa og þau tilheyra því stórum hópi tryggra Toyotaeigenda á landinu.
RAV4 og Yaris eins og hjónin tóku við eru mest seldu gerðirnar hjá Toyota það sem af er þessu ári. Ný kynslóð Yaris kom á markað á síðasta ári og var bíllinn þá í fyrsta sinn kynntur í tvinnútgáfu.