Vildi endurgreiðslu eftir fíkniefnakaup

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði fíkniefnaviðskipti sem voru í gangi á salerni veitingastaðar í umdæminu um helgina. Þegar lögreglumenn bar að voru tveir menn þar fyrir. Hélt annar þeirra á glærum poka. Hann tók sprettinn að salerninu, þegar hann varð lögreglunnar var og er talið að hann hafi náð að losa sig við eitthvað af fíkniefnum.

 Hinn maðurinn kvaðst hafa verið að kaupa „stöff“ af pokamanninum. Þeir heimiluðu báðir leit á sér og fannst ekkert saknæmt á þeim fyrrnefnda, en hass á þeim síðarnefnda. Meðan lögreglumenn voru við störf á vettvangi margbað kaupandinn þá að láta sig hafa fimm þúsund krónur sem hann hefði verið búinn að greiða pokamanninum fyrir „stöffið“ þegar lögregla setti viðskiptin í uppnám.

 Fíkniefnasalinn, sem bæði var ölvaður og æstur, var handtekinn og færður á lögreglustöð og fimm þúsund krónurnar haldlagðar sem meintur ágóði af fíkniefnaviðskiptum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert