Íslendingar höfðatöluheimsmeistarar

Um 1% þjóðarinnar var á Ullevål-leikvangnum í gær
Um 1% þjóðarinnar var á Ullevål-leikvangnum í gær Eva Björk Ægisdóttir

Bandaríska vefsíðan Slate.com fjallar í dag um fjölmörg met sem Íslendingar eiga samkvæmt hinni frægu höfðatölu. Bent er á að fjöldi íbúa á Íslandi er eins og í smábæ í Texas, þannig að í hvert skipti sem Íslendingar geri eitthvað stórfenglegt, þá eru þeir að slá heimsmet samkvæmt höfðatölu. 

Á Ullevål leikvanginum í Ósló í gær voru um 3 þúsund Íslendingar mættir til þess að styðja sína þjóð. Það gerir um 1% af þjóðinni. Þegar litið er á fjölda rithöfunda á Íslandi kemur í ljós að tíundi hver Íslendingur hefur gefið út bók á ævinni, og þegar litið er til þess að um 6 þúsund manns mótmæltu á Austurvelli í kjölfar hrunsins kemur í ljós að það er um 2% þjóðarinnar sem var þar saman kominn. 

Að lokum segir í greininni að samkvæmt Hagstofu Íslands er búist við því að Íslendingum muni fjölga á næstu árum, og að þeir verði á bilinu 430 og 490 þúsund árið 2060. Sá vöxtur kunni að reynast Íslendingum vel, en það þýðir mögulega endalok allra þessara höfðatöluheimsmeta okkar. 

Sjá umfjöllun Slate.com

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert