Sjálfbærni og ábyrg auðlindastjórnun

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, flytur ræðu sína á utanríkisráðherrafundi Barentsráðsins.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, flytur ræðu sína á utanríkisráðherrafundi Barentsráðsins. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Mikilvægi svæðisbundins norðurslóðasamstarfs og þau sameiginlegu tækifæri og áskoranir sem ríkin á Barentssvæðinu og nágrannar þeirra deila var Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra, hugleikið í ræðu sem hann flutti í dag á utanríkisráðherrafundi Barentsráðsins sem fram fór í Tromsø í Noregi. Sömuleiðis þeir miklu möguleikar sem ríkar náttúruauðlindir svæðisins fela í sér.

Mikilvægt væri að íbúar svæðisins nytu ávaxta aukinna efnahagsumsvifa þar sem ábyrg auðlindastjórnin lægi til grundvallar og markmið um sjálfbærni. Þá sagði ráðherrann að auknar siglingar um Norður-Íshafið færðu með sér ýmis tækifæri en legðu jafnframt aukna ábyrgð á herðar stjórnvalda á sviði umhverfis- og öryggismála samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

„Fjallaði hann af því tilefni um áherslur ríkisstjórnarinnar á mikilvægi björgunarmála á norðurslóðum. Ráðherra fagnaði áherslu á endurnýjanlega orkugjafa í ráðherrayfirlýsingu fundarins samhliða því að ríkin á norðurslóðum vinni gætilega að frekari nýtingu olíu- og gasauðlinda. Þá ræddi ráðherra loftslagsmál og mikilvægi þátttöku frumbyggja í norðurslóðasamstarfi, sem og aukinn þunga í norðurslóðastefnu Íslands á samvinnu við atvinnulífið og áherslu á kynjajafnréttismál á norðurslóðum,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert