Búið að bjarga áhöfninni

Þyrlan TF-GNA hefur nú bjargað áhöfn flutningaskipsins Fernanda eða samtals 11 manns um borð og eru allir heilir á húfi. Þyrlan flytur fólkið til Reykjavíkur. Brú skipsins var orðin alelda og skipverjar komnir út á þilfar er þyrlan kom að.

Varðskipið Þór er á leiðinni á staðinn og mun freista þess að slökkva eldinn, segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar. Í varðskipinu er öflugur slökkvibúnaður til þess að fást við eldsvoða um borð í skipum á rúmsjó.

TF-GNA kom að flutningaskipinu kl. 14:35. Þá var TF-LÍF rétt ókomin.

Þór, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar er einnig rétt ókomið á vettvang. Lóðsinn í Vestmannaeyjum svo og önnur skip á svæðinu stefna á staðinn.

Flutningaskipið Fernanda strandaði við innsiglinguna í Sandgerðishöfn 5. maí árið 2012. Skipið mun hafa komið of hratt í innsiglinguna og því strandað. Skemmdir voru litlar og losnaði skipið af sjálfsdáðum af strandstað.

Fernanda er 75 metra langt skip og um 2.500 brúttótonn. Skipið er skráð í Dóminíska lýðveldinu og var byggt árið 1981.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert