Slasaðist þegar strætó fór útaf

Strætisvagninn valt skammt frá Húsavík í morgun
Strætisvagninn valt skammt frá Húsavík í morgun mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Strætisvagn sem var á leið til Húsavíkur í morgun valt skömmu fyrir klukkan tíu skammt sunnan við Húsavík. Vagnstjórinn hlaut áverka og þurfti að beita klippum til að koma honum út úr bifreiðinni. Aftur á móti amaði ekkert að eina farþeganum sem var í strætisvagninum.

Samkvæmt tilkynningu frá Strætó var farþeginn fluttur á sjúkrahús til skoðunar en kalla þurfti til tækjabíl slökkviliðsins til að losa vagnstjórann úr bílnum. Hann var fluttur á sjúkrahús. Mikil hálka og krapi var á veginum þegar slysið varð og töluverður vindur.

 Ferðinni frá Húsavík sem átti að fara klukkan 10:30 hefur verið aflýst, samkvæmt upplýsingum frá Strætó.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert