Byrjað að dæla olíu úr Fernöndu í dag

Tryggingafélag Fernöndu hefur afsalað skipinu til endurvinnslufyrirtækisins Hringrásar.
Tryggingafélag Fernöndu hefur afsalað skipinu til endurvinnslufyrirtækisins Hringrásar. mbl.is

Búist er við að byrjað verði að dæla olíu úr flutningaskipinu Fernöndu í dag. Hugsanlegt er að skipið verði dregið til Helguvíkur á morgun.

Starfsmenn Skipaþjónustu Íslands hafa undanfarna daga unnið við að dæla sjó og sora úr skipinu sem liggur í Grundartangahöfn. Sjórinn fer í gegn um skilju á hafnarbakkanum.

Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir að verkið hafi gengið vel og reiknar með að hægt verði að hefja dælingu úr olíutönkum skipsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert