13 ára í vímu undir stýri

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

 Tilkynnt um umferðaróhapp á Miklubraut þar sem jeppabifreið var ekið í gegnum girðingu á umferðareyju (miðju) skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt. Bifreiðinni hafði verið stolið og var ökumaðurinn farinn af vettvangi er lögreglan kom á staðinn.

Ökumaðurinn var handtekinn skammt frá og var þá kominn inn í aðra bifreið sem ekkert frekar var í hans eigu. Ökumaðurinn er aðeins 13 ára og hefur því aldrei öðlast ökuréttindi en hann er einnig grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.  

Í samráði við Barnavernd var ungi ökumaðurinn vistaður á viðeigandi stað.    
Bifreiðin var töluvert skemmd og flutt af vettvangi með dráttarbifreið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka