Allir samtaka í að pissa

Mikill áhugi var á leik Íslands og Króatíu. Bílar sáust …
Mikill áhugi var á leik Íslands og Króatíu. Bílar sáust varla á götum höfuðborgarinnar meðan á leiknum stóð. mbl.is/Golli

Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur, sem voru á vakt í kvöld, sáu vel á mælum sínum þegar var kominn hálfleikur í leik Íslands og Króatíu. Á fjórum mínútum, milli kl. 20:01 og 20:05, fór vatnsnotkunin úr 693 l/sek. í 803 l/sek. Þetta eru þær fjórar mínútur frá því Mandszukic var rekinn út af og þar til flautað var til hálfleiks.

Þetta má sjá á tölum sem Orkuveitan birti á facebook-síðu sinni.  Rennslið í fráveitunni jókst rétt rúmlega þetta á sama tíma.

Tölurnar sýna svo ekki verður um villst að þjóðin hefur verið nokkuð samtaka í því að fylgjast með strákunum keppa í Zagreb.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert