Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 26. til 28. nóvember 2013. 

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 26,8%, borið saman við 28,4% í síðustu mælingu. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 15,2%, borið saman við 14,5% í síðustu mælingu. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 15,0%, borið saman við 16,3% í síðustu mælingu. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,8%, borið saman við 14,3% í síðustu mælingu. Vinstri-græn mældust nú 12,6% fylgi, borið saman við 11,0% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mældist nú með 9,0% fylgi, borið saman við 7,3% í síðustu mælingu.

Dögun mældist með 2,4% fylgi, Hægri grænir með 1,8% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,3% fylgi, Lýðræðisvaktin með 0,9% fylgi, Regnbogaflokkurinn með 0,5% fylgi og Sturla Jónsson með 0,5% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 43,1% en mældist 44,6% í síðustu könnun.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“.

Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“ Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,9%), myndu skila auðu (5,6%), myndu ekki kjósa (2,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,9%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 963 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. til 28. nóvember 2013


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert