Kjaraviðræðum hætt

Alþýðusamband Íslands
Alþýðusamband Íslands mbl.is/Hjörtur

Alþýðusamband Íslands hefur tilkynnt Samtökum atvinnulífsins að kjaraviðræðum sé hætt. Er það vegna djúpstæðs ágreinings við SA um  launalið væntanlegs samnings, einkum það sem snýr að hækkun lægstu launa.

Í tilkynningu frá Samninganefnd ASÍ segir að á undanförnum vikum hafi verið unnið að því að leggja grunn að aðfarasamningi við Samtök atvinnulífsins, þar sem þess yrði freistað að ná auknum kaupmætti, tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og litla verðbólgu.

Ágætur árangur hafi náðst um umgjörð slíks samnings. „Í dag kom hins vegar í ljós djúpstæður ágreiningur við SA um launalið væntanlegs samnings, einkum það sem snýr að hækkun lægstu launa. Svo langt er á milli aðila að samninganefnd ASÍ telur forsendur brostnar fyrir þeirri leið sem átti að varða. SA hafnar þeirri kröfu ASÍ að hækka lægstu laun um ákveðna krónutölu.“

Því hafi samninganefnd ASÍ tilkynnt SA að viðræðum á þessum grunni sé hætt. Framhald viðræðna um gerð nýrra kjarasamninga sé því í höndum aðildarsamtaka ASÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert