Sjö hreindýr drápust og þrjú særðust illa þegar flutningabifreið ók á hreindýrahjörð á hringveginum, á gatnamótum Vopnafjarðar, í nótt. Af þeim þremur dýrum sem særðust er þegar búið að aflífa tvö. Er hjarðarinnar nú leitað til þess að kanna hvort fleiri dýr hafi særst, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum.
Slysið varð um klukkan hálfeitt í nótt og er það rakið til mikillar hálku. Ökumaður flutningabifreiðarinnar slapp ómeiddur en bifreiðin er töluvert skemmd.