Konan enn þungt haldin

Landspítali
Landspítali mbl.is/Lára Halla

Líðan konunnar sem slasaðist í eldsvoða í Breiðholti í nótt er óbreytt. Hún er þungt haldin að sögn læknis á gjörgæsludeild Landspítalans og er henni haldið sofandi í öndunarvél.

Var konan lögð inn á gjörgæsludeildina í morgun ásamt dóttur sinni sem nú er á batavegi og hefur verið flutt á barnadeild.

Konan, sem er á fertugsaldri, var ásamt 13 ára dóttur sinni í íbúð í Írabakka þar sem eldurinn kviknaði. Mæðgurnar komust út við illan leik skömmu áður en slökkvilið mætti á staðinn. Konan er með brunasár og reykeitrun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert