Óskert umfjöllun úr héraðsdómi

Lögmenn og sakborningar.
Lögmenn og sakborningar.

Meirihluti fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að ekki verði sett bann við umfjöllun fjölmiðla um málflutning í máli ákæruvaldsins gegn Stefáni Loga Sívarssyni, Stefáni Blackburn og þremur öðrum. Einn af þremur dómurum tók undir með ákæruvaldinu og vildi banna umfjöllun fjölmiðla.

Saksóknari í málinu fór fram á það við dómara að banna fjölmiðlum að greina frá því sem fram kemur við málflutninginn. Meirihluti fjölskipaðs héraðsdóms komst að þeirri niðurstöðu að krafan væri of seint fram komin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert