Hjólamenn þurfa að meta aðstæður

Stöðugt fleiri kjósa að nota reiðhjól allt árið til að …
Stöðugt fleiri kjósa að nota reiðhjól allt árið til að komast á milli staða. mbl.is/Styrmir Kári

Hjólreiðamenn sem kvartað hafa undan snjómokstri á hjólastígum í Kópavogi hafa fengið þau svör frá bænum þeir verði „að meta aðstæður að vetri, ef nota á reiðhjól sem farartæki“.

Maður sem notar reiðhjól til að komast á milli staða sendi brýningu á Kópavogsbæ fyrir skömmu um að standa betur að því að ryðja snjó af hjólastígum. Bærinn ætti að leggja metnað sinn í að standa jafnvel að baki þjónustu við hjólandi vegfarendur og Reykjavíkurborg.

Í svari Kópavogsbæjar segir: „Verkstjórar Áhaldahússins meta aðstæður vegna snjóa og hálku hverju sinni og á hvern hátt er brugðist við. Á sama hátt hlýtur að þurfa að meta aðstæður að vetri, ef nota á reiðhjól sem farartæki.“

Talsverð umræða hefur skapast á Facebook um þetta svar, en hjólamönnum finnst sumum það ekki bera vott um mikla þekkingu á þörfum hjólandi fólks. Miðað við þjónustuna í Reykjavík sé hægur leikur að hjóla alltaf. Staðan sé önnur í Kópavogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert