Norðurljósagusa væntanleg

mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

„Það er von á gusu svona rétt fyrir hádegi á morgun og leifar af henni verða kannski fram á kvöld,“ segir Þórður Arason, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is en gert er ráð fyrir að norðurljósin verði áberandi á norðurhveli jarðar á morgun. Hins vegar sé það skýjað víðast hvar á landinu að líklega eigi þau ekki eftir að sjást annars staðar en á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þar sem verði léttskýjað.

„Vandamálið er að það er alltaf svo skýjað. Við á höfuðborgarsvæðinu fáum ekki að sjá neitt. Það verður bjart á morgun kannski fram undir kvöldmat og síðan kemur skýjabakki yfir okkur,“ segir Þórður. Virkni norðurljósanna á morgun verður 5 á mælikvarðanum 0-9 sem þýðir að hún verði mikil.

Samkvæmt vef Veðurstofunnar verður virknin á morgun hins vegar 2 eða lítil en Þórður segir að sú tala byggist á röngum gögnum frá veðurstofu Bandaríkjanna, NOAA. Upplýsingar um virkni norðurljósanna á morgun á vefsíðu jarðvísindastofnunar Háskólans í Alaska séu hins vegar réttar en þar segir að hún verði 5 sem fyrr segir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert