Óli Björn aðstoðar Kristján

Óli Björn Kárason.
Óli Björn Kárason. mbl.is

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Óla Björn Kárason tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Ingu Hrefnu Sveinbjarnardóttur.

Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Óli Björn er hagfræðingur að mennt og hefur fyrst og fremst starfað við blaðamennsku og ritstörf. Hann er kvæntur Margréti Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert