Frá og með morgundeginum, miðvikudeginum 23. janúar, verður truflun á umferð á horni Nesvegar og Suðurstrandar (sunnan við Eiðistorg) vegna fráveituframkvæmda á Seltjarnarnesi, sem standa munu yfir í nokkra daga.
Loka þarf Nesvegi við Suðurströnd en hjáleið hefur verið lögð í báðar áttir um bílastæðið við Leikskóla Seltjarnarness eins og sjá má á meðfylgjandi mynd af svæðinu. Búast má við að umferð gangi hægt fyrir sig á þessum slóðum á háannatíma, segir í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ.
Seltjarnarnesbær biður vegfarendur velvirðingar á þessum óþægindum en óskar um leið eftir því að þeir sýni framkvæmdunum þolinmæði og skilning.
Reynt verður að hraða framkvæmdum eins og kostur er, segir í tilkynningunni.