Taka þarf á rekstrinum

Nemendum landbúnaðarháskólans á Hvanneyri hefur fjölgað mjög.
Nemendum landbúnaðarháskólans á Hvanneyri hefur fjölgað mjög. mbl.is/Árni Sæberg

Bændasamtökin vilja að Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri verði gerður að sjálfseignarstofnun, en þannig telja samtökin að sjálfstæði skólans verði best tryggt.

„Við viljum kanna hvort að það sé fýsilegt að gera það og koma þessari hugmynd inn í umræðuna,“ segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna.

Í samtali í Morgunblaðinu í dag um skólann bætir hann við, að samtökin vilji koma að rekstri skólans en að ekkert hafi þó verið ákveðið í þeim efnum, enda sé málið á forræði menntamálaráðherra, en samtökin leggja til að jarðir og aðrar eignir skólans sem ekki eru nú nýttar verði seldar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert