Leiðréttingin getur kostað ÍLS 8-15 milljarða króna

Friðrik Már Baldursson.
Friðrik Már Baldursson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Niðurfærsla höfuðstóls lána vegna leiðréttingar íbúðalána mun magna uppgreiðsluvanda Íbúðalánsjóðs.

Þetta er mat Friðriks Más Baldurssonar, prófessors í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík, sem áætlar kostnað ríkisins vegna þessa minnst á bilinu 8-15 milljarðar kr.

Í frétt í Morgunblaðinu í dag kemur meðal annars fram, að uppgreiðsluvandinn felist í því að ÍLS fær greitt inn á lán sem bera tiltekna raunvexti í mismunandi langan tíma. Þar sem raunvextir útlána ÍLS eru hærri en raunvextir á nýjum lánum sjóðsins, eða skuldabréfum sem hann getur keypt á markaði, tapar sjóðurinn á vaxtamun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert