Lögreglan stöðvaði för bifreiðar á Eiríksgötu í Reykjavík í nótt en í bifreiðinni voru tveir rúmlega tvítugir karlmenn í annarlegu ástandi.
Í ljós kom að ökumaðurinn var undir áhrifum kannabisefna. Einnig fannst lítilræði af fíkniefnum í bílnum.
Á þriðja tímanum í nótt stöðvaði lögregla akstur bifreiðar á Sæbraut. Ökumaðurinn, karl um þrítugt, var mjög ölvaður og eins var bíllinn ótryggður. Ökumaðurinn gistir fangageymslur vegna ástands.