Ísland styður þvingunaraðgerðir vegna Úkraínu

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
<span><span>Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir það mikilvægt skref að Bandaríkin og Evrópusambandið hafi nú gripið til þvingunaraðgerða til stuðnings Úkraínu í kjölfar aðgerða Rússa á Krímskaga og atkvæðagreiðslunnar þar í gær.</span></span>

„Alþjóðasamfélagið þarf að senda skýr skilaboð til stjórnvalda í Rússlandi. Ísland getur á grundvelli EES-samningsins tekið þátt í aðgerðum ESB. Ég tel að Ísland eigi að taka þátt í slíkum aðgerðum og mun ég því eiga lögbundið samráð við utanríkismálanefnd á morgun,“ er haft eftir Gunnari Braga í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Á fundi fastaráðs Atlantshafsbandalagsins í morgun ítrekuðu bandalagsríkin stuðning sinn við stjórnvöld í Úkraínu, hvöttu Rússa til að virða alþjóðlegar skuldbindingar sínar, draga herlið sitt til baka frá Krímskaga og vinna að friðsamlegri lausn í samstarfi við stjórnvöld í Úkraínu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert