Rannsaka meinta líkamsárás á Litla Hrauni

Fanginn segir að fjórir fangaverðir hafi gengið í skrokk á …
Fanginn segir að fjórir fangaverðir hafi gengið í skrokk á sér. mbl.is/Brynjar Gauti

Lögreglan á Selfossi hefur hafið rannsókn á meintri líkamsárás í fangelsinu á Litla-Hrauni en fangi sakar fjóra fangaverði um að hafa gengið í skrokk á sér. Meint árás mun hafa átt sér stað síðastliðinn miðvikudag. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. 

Fanginn segir í viðtali að fjórir fangaverðir hafi beðið hann að fylgja sér í fangaklefa, þar sem framkvæma átti leit. Þeir hafi aftur á móti ekki leitt hann þangað, heldur gengið í skrokk á honum þar sem tvær tennur voru slegnar úr honum. Hann hafi því næst verið klæddur úr öllum fötum og færður í einangrunarklefa þar sem hann dvaldi yfir nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert