Keflavíkurflugvöllur á meðal þeirra bestu

mbl.is/Sigurgeir

Alþjóðasamtök flugvalla (Airports Council International (ACI)) hafa valið Keflavíkurflugvöll á heiðurslista yfir bestu flugvelli í heimi – ACI Director General's Roll of Excellence.

Útnefningin nær til flugvalla sem óslitið hafa sýnt frábæran árangur í þjónustukönnunum  samtakanna meðal flugfarþega frá árinu 2008, að því er segir í tilkynningu frá Isavia.

Alls hefur 21 flugvöllur hlotið þennan heiður frá árinu 2011 og í ár bætast eftirtaldir sex alþjóðaflugvellir í hópinn:

Keflavíkurflugvöllur

Dubaiflugvöllur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 

Kaíróflugvöllur í Egyptalandi

Hyderabad Rajiv Gandhi-flugvöllur á Indlandi

Taoyuanflugvöllur á Taívan

Sangsterflugvöllur á Jamaíku

Þá kemur fram í tilkynningunni að framkvæmdastjóri ACI segi áherslu á að uppfylla síauknar væntingar farþega skipta sköpum í samkeppnishæfni alþjóðaflugvalla. Þessir sex flugvellir hafi ítrekað sýnt að þar ríkir mikill skilningur á áherslu farþega á góða þjónustu og einnig á nauðsyn þess að ganga skrefi framar í að uppfylla væntingar.

„Þessi frábæri árangur er fyrst og fremst að þakka starfsfólki og samstarfsaðilum okkar á Keflavíkurflugvelli og áherslu á sífellt aukna þjónustu,“ er haft eftir Birni Óla Haukssyni, forstjóra Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert