Jarðskjálftahrina hófst uppúr miðnætti á Reykjaneshrygg 25-30 km frá landi við Geirfugladranga.
Jarðskjálftafræðingur Veðurstofunnar á vakt segir að að erfiðara sé að staðsetja jarðskjálfta utan við mælanetið og því virðast skjálftarnir á vefkortunum dreifa sér um stærra svæði.
Stærsti skjálftinn mældist 3,5 stigklukkan 00:27. Nokkrir skjálftar með stærð um 3 hafa mælst. Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist, samkvæmt upplýsingum frá jarðskjálftafræðingi Veðurstofu Íslands.