„Bylting í upplýsingagjöf til ferðamanna“

Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, tók fyrsta skjáinn formlega í …
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, tók fyrsta skjáinn formlega í notkun í dag, en hann er staðsettur hjá Olís í Norðlingaholti. Með henni er Hörður Már Harðarson formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. mbl.is/Kristinn

Nýtt skjáupplýsingakerfi Safetravel hefur verið tekið í notkun en setja á upp skjái á allt að 30 helstu viðkomustöðum ferðamanna víðsvegar um landið. Markmiðið er að efla upplýsingagjöf til ferðamanna, enda upplýsingagjöf eitt mikilvægasta tækið þegar kemur að forvörnum.

Fram kemur í tilkynningu að skjáirnir verði settir upp á stærri upplýsingamiðstöðvum, umferðamiðstöðvum, flugvöllum, stærri gististöðum og bensínstöðvum. 

„Um er að ræða byltingu í upplýsingagjöf til ferðamanna hér á landi, ekki síst vegna þess hversu víðtækt samráð ýmissa aðila, svo Vegargerðarinnar, Veðurstofu, almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, ferðaþjónustunnar og fleiri, liggja að baki átaksins,“ segir í tilkynningu. 

Þá kemur fram að útlit þeirra verði samræmt en upplýsingarnar sem birtist verði staðbundnar. Þannig gæti skjár í Staðarskála t.d. sýnt færð á Holtavörðuheiði á vefmyndavél og á korti yfir Norðvesturland, svo dæmi sé tekið.

Einnig verða birt almenn ferðaheilræði, svo sem varðandi akstur, gönguferðir, þverun straumvatna, neyðarnúmerið 112 og fleira í þeim dúr. Í tilfellum þar sem stór vá væri fyrir höndum gæti viðvörun um slíkt tekið yfir allan skjáinn eða hluta hans.

Er það von Slysavarnafélagsins Landsbjargar og allra þeirra aðila sem koma að SafeTravel verkefninu að með kerfinu verði hægt að auka upplýsingagjöf til ferðamanna og þar með öryggi þeirra og ánægju.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert