390 námsmönnum tryggð sumarvinna

mbl.is/Friðrik Tryggvason

Varið verður 150 milljónum króna úr Atvinnuleysistryggingasjóði til þess að tryggja 390 námsmönnum störf í sumar hjá ríki og sveitarfélögum. Þetta hefur Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra ákveðið í samræmi við tillögu frá Vinnumálastofnun. Fram kemur í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu að þetta sé í fimmta sinn sem ráðist er í slíkt átak.

„Stofnanir ríkis og sveitarfélaga hafa jafnan sýnt þessu mikinn áhuga og Vinnumálastofnun hefur að undanförnu borist allmargar fyrirspurnir um hvort átakið verði endurtekið í sumar. Að mati stofnunarinnar er þörf fyrir átaksverkefni í sumar en störf í boði verða þó færri en verið hefur þar sem aðstæður á vinnumarkaði eru betri en síðustu ár. Miðað er við að af þeim 390 störfum sem til verða í tengslum við átakið verði um 60% þeirra hjá ríkisstofnunum en 40% hjá sveitarfélögum,“ segir ennfremur.

Þá kemur fram að framlag Atvinnuleysistryggingasjóðs til átaksins svari grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta vegna hvers starfs auk 8% mótframlags í lífeyrissjóð eins og verið hefur. Vinnumálastofnun sjái um undirbúning og skipulag átaksins líkt og áður og nánari upplýsinga sé að vænta frá stofnuninni eftir páska.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert